|
Áhugaverðir einstaklingar
|
29.09.2006 00:09:39 / omarh
Verður að segjast einn af merkari dögum Íslands í dag. Hálslón
byrjað að fyllast sem er mjög vel. Það er allaveganna mín skoðun að
auðlindir landsins séu nýttar, það er svo annað mál hvaða
árðsemismarkmið skuli höfð að leiðarljósi við slíkar framkvæmdir.
Ég veit hreinlega ekki töluna sem býr að baki hnjúkunum, og þið
ekki heldur, þar sem slíkar tölur hafa ekki verið gefnar upp og ég
tek ekki afstöðu til mála sem byggð er á getgátum. Ég átti tal við
prófessor sem er að kenna hagfræði við meistaranám upp í HR um
daginn og umræðan var einmitt utilization of natural resources, og
hans var svar hans einfalt, "there is no question in my mind wether
or not a nation should utilize its resources, for prosperity of a
nation in todays market lies with expanding its markets and
resources" Ég hef einhvern veginn ávalt reynt að hlusta á
fræðimennina og það var ágætt að hlýða á hans orð. Annars þá er það
öruggt að nýting á auðlindum þarf að fara hönd í hönd við nátturu
hvers lands og vand meðfarið þegar um jafn stórt verkefni er að
ræða og nú. Hins vegar þá er öruggt að landið var ekki að selja út
á ferðamannaiðnað upp á Kárahnjúkum og því var engin
fraamleiðniaukning sem átti sér stað né aukin velsæld þegnanna á
staðnum. Hins vegar munum við nú horfa fram á aukinn hagvöxt upp á
tugi prósenta sem afleiðing af virkjun og álveri og hagvöxtur eins
og honum hefur verið stýrt hefur aukið kaupmátt launa margfalt
umfram verðbólgu, það er því mikilvægt að fólk líti á
heildarmyndina. Og þá helst af öllu þá gremst mér mjög háværar
raddir fólks sem apa upp eftir fjölmiðlum og fámennum hóp manna
einhliða flutning umræða sem svo leiðir til jafnvel neikvæðrar
umræðu erlendis, sem að lokum dregur úr aðdráttarafli landsins,
maður ætti kannski að þakka fyrirfram fyrir þann tekjumissi sem
landið og þegnar þess verða af vegna þessa. ÉG vona allaveganna að
launin þeirra lækki en ekki mín. Annars segi ég þetta gott af
málefnum líðandi stundar
»
27.09.2006 15:38:55 / omarh
Ég hef löngum velt fyrir mér þeirri hamingju sem seinnipartur
viku færir manni. Helgar eru náttúrulega í sjálfu sér stórkostlegur
hlutur, enda eru þær styttri og manneskjan er einfaldlega svo
einföld að það sem er vöntun af er áhugi fyrir. Núna er
miðvikudagur og það er strax komið glott og örlítil meiri ánægja
yfir mann heldur en í gær.
Annars hefur endurnýjast áhugi minn á lestri, hann datt alveg út
síðustu mánuði, og er ég klár á því að það hefur með birtustig að
gera. Um leið og sólin hættir að setjast þá nennir maður
einfaldlega ekki að lesa. Svo þegar myrkrið skellur yfir þá kemur
líka þessi fína þörf á því að slaka á, henda löppunum upp á borð og
lesa góðan doðrant af "useless information"
Svo er fótboltinn á fullu núna, að venju var mikið tekið á á
sunnudaginn og skemmst frá því að segja að ég gat minna en ekkert
og ekkert meira um það að segja, eiginlega ennþá hálf fúll yfir
því.
Hins vegar bætti ég það upp í Pool með félögunum eftir bolta,
held ég hafi ekki séð aðra eins heppni hjá sjálfum mér í háa
herrans, þetta var eiginlega bara rosalegt.
Segi þetta ananrs gott í bili
»
24.09.2006 12:10:17 / omarh
Hef fylgst svolítið með Ryder
Eitt sem hefur sérstaklega stungið mig er hvað það er mikið af
lélegum höggum, en kannski er bara staðreyndin sú að við fáum að
horfa á miklu fleiri og miklu mun fleiri högg heldur en bara bestu
höggin frá bestu spilurunum.
Annars er ég ósáttur við spilamennsku USA í mótinu, þeir eru nú
favorite hjá mér þó við eigum að teljast EUR mennm en ég er frekar
að beina sjónum mínum að einstaklingum og skemmtilegu golfi fremur
en hvaða lið vinnur, en ég vil sjá spennu seinnipartinn og vona því
að USA verði yfir í fleiri leikjum en nú er raunin.
Svo hefur mikill hluti af helginni farið í að aðstoða konuna sem
er í prófum, hélt loksins að ég væri laus við nám og vesen en svo
er aldeilis ekki, Hagfræðin og accounting er mikið upp á borðum
núna "jibbý"
Annars þá segi ég þetta gott í bili, sunnudagsboltinn í kvöld og
ætla ég mér að sækja rúm tíu stig í kvöld að lágmarki
»
15.09.2006 10:21:52 / omarh
Þá er komið að því menn skuli kyrja um ágæti vors lands og
þjóðar, undurfallegir hólar og sandkorn sem eiga sér enga sérstöðu
í heiminum.
Hengilsársvæðið er síðasta hugarefni fjölmiðla og vinstri
grænna. Þarna eru gersemar sem enginn má missa af, verða að sjá og
hver á eftir öðrum hópast upp til að dásama þennan gríðarfallega
stað sem þó enginn vissi af fyrr en hann datt inn á áætlun
Landsvirkjunarmanna. Ég persónulega vona svo innilega að
Vatnsendasvæðið detti inn á áætlun Landsvirkjunarmanna því að
umfjöllum sem fylgir slíkum svæðum er gríðarleg og eignaverð hlýtur
einfaldlega að rjúka upp. Það er aldrei að vita hvort ég banki ekki
upp á hjá Frikka Soph
| Þetta eru afar afskekkt svæði og fáfarin, nema helst af
smalamönnum á haustin. Þangað er líka fremur fátt að sækja fyrir
ferðamenn, nema þá til að skoða hreindýr og minjar um framrás
Brúarjökuls. Hvort tveggja er þó aðgengilegt með auðveldari hætti
annars staðar... |
| - Árbók Ferðafélags Íslands 1987,
um Kringilsárrana. |
Þarna skv. ferðamönnum og sérfræðingum um göngur og útivist er
sem sagt "ekkert að finna" og eiginlega best að leita að sama
hlutnum annars staðar á landinu. Hins vegar eru fjölmiðlamenn og
vintra fólk að fara hamförum í umfjöllun um svæðið og segja að ef
hluta verði sökkt þá sé enn vegið að fallegri náttúru sem enginn fá
séð.
Þetta er kannski bara árás sérfræðinganna á svæðið, hver dirfist
að rita annað eins í bækur sem lifa að eilífðu, það ætti
náttúrulega að kasta í þennan höfund grænu skyri og hóta öllu illu,
jafnvel setja upp krana yfir húsi hans og hanga í honum með
fána.
Þegar betur er að gáð þá er höfundur þessa merkilega pistils
enginn annar er Hjörleifur Guttormsson sá
rammíslenski kommúnisti sem þrífst á náttúrunni og einn af
"verndurum" landsins. Ekki rjúka fjölmiðlar upp og agnúast út í
annan eins vitleysing fyrir að dirfast að segja að þarna sé ekkert
að finna.
Þessi farsi verður skemmtilegri með hverjum deginum verður að
segjast. Guði sé lof að hann skrifaði ekki pistilinn um Kárahnjúka
og þar væri kannski ekkert að finna heldur.
»
12.09.2006 13:39:48 / omarh
Batnandi mönnum er best að lifa, sagði einhver snilldar
heimspekingurinn, ég sjálfur hef "reynt" að lifa eftir þessari
stórkostlegu speki en eins og margir hafa bent mér á , þá er ég
þrjóskari en margur annar og ef ég hef á annað borð bitið
vitleysuna í mig þá er lítið sem fær mig ofan af því.
Hins vegar fær bróðir minn hrós fyrir afsökunina, mér líður
strax betur 
Svo er það blessaða pólitíkin, það er nákvæmlega ekkert að
gerast þessa dagana svo að fréttirnar eru ekki uppáhalds
sjónvarpsefnið í dag, hins vegar fékk ég góðan glaðning á
flakkarann minn nýlega, þættir sem kallast Criminal Minds og mæli
ég eindregið með þessari snilld, hefur allaveganna farið mikill
tími í sjónvarpsgláp. Síðan er það að frétta að heiman að netið
bilaði, sjónvarpið lauk æviskeiði sínu og nýji prentarinn kom án
allra snúra, tölvan mín er stútfull af lögum og gengur því
ekkert og það virðist sem raftækin hafi risið upp og farið í
eitt allsherjar verkfall, ég bíð bara eftir því að þvttavélin fari
og þá er þetta fullkomnað.
Það bjargast reyndar þar sem fótboltinn er byrjaður og menn hafa
verið ólmir að "reyna" að vinna mig í Pool svo að það er lítil þörf
á þessum tækjum í bili.
Annars er hér ein hugleiðing,
If your parents never had children, chances are you won´t
either!
»
04.09.2006 13:00:25 / omarh
Vetrarboltinn hafinn á ný,
Gargandi snilld verður að segjast, hófst vertíðin með látum í
gær og ég verð að segja að þetta var með betri byrjunarboltum sem
sést hafa, mikil vinnsla og hlaupið mikið svo það er greinilegt að
það verður stuð í vetur og menn í formi.
Annars þá tók ég eftir að eldri bróðir minn heldur áfram að
rauna mér, hann er sem sagt með Nickið Ögmundur Jónasson, hvað hef
ég eiginlega gert drengnum til að hann minni mann á þennan hund.
Við erum að tala um óforskammaðasta þingmann sögunnar, já ég held
bara að hann toppi Forsetann "Grísinn", í baktali og ömurlegum
persónuárásum án þess að þurfa að tala um málefni líðandi stundar
og reyna að stuðla að bættu þjóðfélagi.
Ég hef því ákveðið að ræða ekki við hann fyrr en nickinu hefur
verið breytt og hann beðist opinberlega afsökunar á ódæðinu, annars
er ég að koma mér í að lesa hjálparbókina sem hann kyrjar svo mikið
um, þetta er allt að koma.
Síðan er golfvertíðin því miður að ljúka, synd eiginlega þar sem
ég er upp á mitt besta þessa stundina og hefði verið til í góðan
mánuð í þokkalegu veðri til viðbótar en svona er þetta, við búum nú
einu sinni á hjara veraldar.
Læt þetta annars gott heita að sinni, þar til næst áfram
Frjálshyggjan!
»
30.08.2006 16:02:50 / omarh
Loksins, náði mér í kvefpesti. Búinn að liggja eins og aumingi
að gera ekki neitt í tvo daga, ömurlegt í alla staði verður að
segjast.
Hins vegar var mér send þessi líka frábæra dæmisaga um
velferðakerfi og jafnan rétt til alls, þið megið svo sem fá að
túlka hana annars sjálf
The Little
Red Hen-Modern version
Once upon a time, on
a farm in Texas, there was a little red hen who scratched about the
barnyard until she uncovered quite a few grains of wheat.
She called all of her
neighbors together and said, "If we plant
this wheat, we shall have
bread to eat. Who will help me plant it?"
"Not I," said the cow.
"Not I," said the duck.
"Not I," said the pig.
"Not I," said the goose.
"Then I will do it by myself," said the little red hen. And so she
did; The wheat grew very tall and ripened into golden grain.
"Who will help me reap my wheat?" asked the little red hen.
"Not I," said the duck.
"Out of my classification," said the pig.
"I'd lose my seniority," said the cow.
"I'd lose my unemployment compensation," said the goose.
"Then I will do it by myself," said the litt le red hen, and so she
did. At last it came time to bake the bread.
"Who will help me bake the bread! ?" asked the little red hen.
"That would be overtime for me," said the cow.
"I'd lose my welfare benefits," said the duck.
"I'm a dropout and never learned how," said the pig.
"If I'm to be the only helper, that's discrimination," said the
goose.
"Then I will do it by myself," said the little red hen. She baked
five loaves and held them up for all of her neighbors! to see. They
wanted some and, in fact, demanded a share. But the little red hen
said, "No, I shall eat all five loaves."
"Excess profits!" cried the cow.
"Capitalist leech!" screamed the duck.
"I demand equal rights!" yelled the goose.
The pig just grunted in disdain.
And they all painted "Unfair!" picket signs and marched around and
around the little red hen, shouting obscenities.
Then a government agent came, he said to the little red hen, "You
must not be so greedy."
"But I earned the bread," said the little red hen.
"Exactly," said the agent. "That is what makes our free enterprise
system so wonderful. Anyone in the barnyard can earn as much as she
wants. But under our modern government regulations, the productive
workers must divide the fruits of their labor with those who are
lazy and idle,"
And they all lived happily ever after, including the little red
hen, who smiled and clucked, "I am grateful, for now I truly
understand,"
But her neighbors became quite disappointed in her. She never again
baked bread because she joined the "party" and got her bread
free.
And all the Democrats smiled. 'Fairness' had been established.
Individual initiative had died, but nobody noticed; perhaps no one
cared.....as long as there was free bread that "the rich" were
paying for.
Guði
sé lof fyrir jafnan rétt og svo framvegis...
»
22.08.2006 13:05:24 / omarh
Búinn að fá nýju kylfingur.
Verð að segja að þessi járn eru alveg þrælmögnuð, Titleist MB
blade járn og frumraunin ekki slæm, 69 í Hveragerði og 1. sætið í
Opne hole in one. 
Annars þá nýtti ég gjafakortið til að fá mér nýjan wedge og er
búinn að panta hina 2 sem vantar upp á. Núna er ekkert að gera nema
bíða get ekki sagt ykkur hvað ég hlakka til að vera með alveg
ný járn og wedga. fékk nýjan 58 gráðu sandara sem spinnar þennan
líka helvítis helling, hef ekki kynnst öðru eins síðan 2001 þegar
clevelandinn var upp á sitt besta.
Annars hef ég heilmikinn hug á að detta á Akureyris um helgina
og spila í Mitsubishi. Prófa nýja settið og taka gamla heimavöllinn
í gegn. Búinn að vera spila hörku golf þessa dagana og því um að
gera að spila eins mikið og ég get þar til sólin er endanlega sest
og rokið og snjókoman tekur völdin á ný.
Annars eru teikningarnar að kofanum tilbúnar og held bara að
búið sé að samþykkja kofann. Nú er bara að bíða og sjá hvenær ég
fer af stað í herlegheitin. Hlakka mikið til og farið að gera ykkur
klár í fyrsta partýið í Fróðaþinginu sem NB! verður í febrúar 2009
hehehehe
En til næstu færslu
adios
»
09.08.2006 12:46:53 / omarh
Kappinn kominn frá Frakklandi!
Við hjónakornin fórum til París ásamt Attilla og frú og skemmtum
okkur líka svona konunglega. París er án efa ein af fremstu borgum
heims í byggingalist, og hef ég nú séð nokkrar. Louvre, D´orsey,
Notre Dame, Kirkjur og fjööldinn allur af byggingum frá Renaissance
tímanum vöktu mikla hrifningu, sérstætt að líta á þessar byggingar
og átta sig á því að á sama tíma og meira að segja 300 árum seinna
vorum við íbúar Íslands enn í moldarkofum og í einyrkjunni ..
magnað ...
Annars þá er metro kerfið þarna álíka og í Barcelona og er
þvílík snilld. Að hugsa sér að geta farið um alla borg og til baka
aftur fyrir 200 krónur íslenskar er náttúrulega bara leiðin.
Eitthvað annað en gula ógeðið sem keyrir um borgina hér og stoppar
á 100 metra fresti til að æra alla og nýtist engan veginn.
Ég segi einfaldara kerfi með færri stoppum og við ættum að geta
gengið þessa 500 metra sem þarf til ef stoppistöðin er ekki beint
fyrir utan. Þessi einkabíls menning er hreinlega ekki að skila sér.
Það má hafa tvær til þrjár stöðvar í hverju úthverfi sem ganga svo
niður í bæ og þá ættu allir að komast á auðveldan hátt þangað sem
þeir vilja á skömmum tíma. Hafa hreinlega stór bílastæði við
úthverfisstöðvarnar ef þið nennið ekki að ganga þangað!!
Annars öðlaðist ég nýtt grínmerki á Sacré Cur kirkjunni, þetta
er sem sagt gullpeningur blessaður þannig að ég hef guð með mér í
sveitakeppnina, ég bara get ekki séð að ég missi pútt hehe. Alltaf
gaman að fá svona minjagripi sem henta vel.
Svo er það listafólkið, myndlist myndlist og meira af myndlist,
annan eins fjölda og magn af listamönnum hef ég hvergi séð og það
fyndnasta við þetta er að þetta voru sömu olíumyndirnar teiknaðar
aftur og aftur haha, ég meina ég gat fengið 20cm * 20cm mynd
handmálaða af Sigurboganum eða einhverju öðru þarna í mismunandi
litum en alltaf sömu myndina, þetta er náttúrulega bara
kostulegt.
Annars þá vara ég fólk við því París er langsamlegasta dýrasta
borg sem ég hef komið í, til hliðsjónar þá var ódýrasti bjórinn á 6
evrur sem ég sá en yfirleitt var hálfi líterinn að kosta 8 evrur,
ég meina 730 krónur!!, ég fæ ódýrari bjór hérna heima, og léttvín á
veitingastað eða bar er á 3000 kall. Eins er allur fatnaður og
annað mun dýrari en gengur og gerist annars staðar í Evrópu.
Annars segi ég þetta gott í bili
au revoir
»
17.07.2006 11:36:10 / omarh
Kominn frá Akureyri,
Lítið golf spilað en fylgdist mikið með öðrum, Ísl. mót +35 fór
fram og gekk vel að ég tel, menn skemmtu sér hið besta þó svo að
rok hafi verið flesta dagana.
Annars þá var tekinn bolti með Elfari bróður og stubbunum úr
handboltanum og hafðist sigur í vel flestum leikjum, verð að segja
að þessi "mini" vellir sem er búið að setja upp um allt land eru
alger snilld og eiga eftir að auka spil um land allt.
Annars á tók ég eftir því að Addi bayeor hélt því fram að hann
hefði "leyft" mér að vinna nokkra leiki í pool, muhahahha, eins og
það sé möguleiki. Kallinn æfir eins og atvinnumaður og spilar frá
4-10 leiki á dag í recreational herberginu hjá TS og það bara dugar
samt ekki!!.
En af fótbolta þá bauð Addi mér með í Val og FH í gær og er ég
hámóta fúll yfir að hafa ekki farið þar sem það hefði verið
óborganlegt að sjá andlitið á vini mínum þegar hans menn töpuðu,
Arnar er einmitt einn almesti keppnismaður sem ég þekki og
sennilega enginn jafn fúll þegar hann tapar. Sem gerir þetta
náttúrulega ennþá skemmtilegra.
Annars er ég búinn að skrá mig í Íslandsmótið og spurning hvort
maður æfi sig ekki svolítið áður en maður keppir og standi sig, og
í tilefni þess þá hef ég ákveðið að bjóða út kaddístarfið til handa
lestrarhestunum á síðunni. Svo látið tilboðin rigna inn, ekki þarf
að bjóða í alla hringina heldur má senda inn tilboð í einn og einn
hring.
Munið svo að góður golfhringur kemur eftir yfirvegað og úthugsað
spil þar sem fyrirfram er búið að ákveða strategíu á hringnum.
kveð að sinni
»
12.07.2006 14:21:30 / omarh
Styttist í það, er að fara norður á morgun, Landsmót öldunga (já
eða +35) að hefjast og verð ég sérlegur fulltrúi GSÍ á staðnum,
þarf að vinna örlítið líka enda um að gera að nota ferðina.
Annars heyrði ég magnaðan brandara,
Hvað er heil eilífð?
Jamm heimspekileg hugsun en eilífð er sá tími sem líður á milli
þess sem maður fær það og þangað til að leigubíllinn kemur!!

Annars skellti ég mér í golf í gær í Grafarholtinu með
Kronverjunum, spilaði á 73 en hringurinn var skelfing þar til á 8.
holu, var 5 yfir eftir 5 og vissi ekkert hvað var að gerast en
þetta lagaðist í lokin, svo er búið að plana Ryder milli Kronverja
og Bjarnverja en þar eru á ferð Bjarni ben, Stebbi Hilmars, og
fleiri góðir kappar, án efa verður þetta mikil keppni.
Síðan, hvað er málið með þetta veður, magnað búinn að fara
nánast landshorna á milli og ekki finna þokkalegan dag. Þetta er
annaðhvort á undan mér eða rétt á eftir eða bara ekkert veður yfir
höfuð. Svo ég er loksins búinn að fá nóg og er að fara til París,
já mikið rétt, kallinn á leiðinni út um versló í fimm nætur og það
verður bara slappað af, og ég er meira að segja að hugsa um að
slökkva á bannsettum gemsanum einu sinni og eiga almennilegan
frídag.
Attilli nýkrýndur Akureyrismeistari verður með í för og hans
hefðarfrú og ég á von á því að það verði tekið rautt og hvítt
eitthvað aðeins í ferðinni. louvre skoðað ja allaveganna svona
1/100 af því og d´orsay og fleiri góð söfn, ásamt must-see
sigurboga og eiffel turni sem verður án efa skemmtileg
lífsreynsla.
Síðan er boltinn loksins að byrja aftur í kvöld og hlakka ég
mikið til að takast á við vinnufélagana í "Risanum" hjá FH-ingunum.
Ég spái sigri fyrir mitt lið enda óvenju sprettharður þessa dagana
hehe
Annars þá var ég búinn að finna þetta líka fína nýyrði fyrir
Adda en er að sjálfsögðu búinn að glyma því núna, en ég lofa að
finna það næst. Annars er ég á góðri siglingu með að blogga
500 sinnum oftar en félagi minn sem virðist ekki hafa tíma í neitt
annað en að spila pool (en virðist samt ekkert batna ) hehe
haldið svo áfram að æfa golfið!!
ciao
»
03.07.2006 15:17:51 / omarh
Ættarmót um síðustu helgi sem heppnaðist bærilega, hitti
þarna gamla ættingja sem ég hef ekki séð svo árum skipti og það var
vel tekið á því, lenti í Viskí óförum sem sneri maganum á mér á
hvlof og áthján hundruð hringi og er ekki búinn að jafna mig ennþá.
Note to slef, ekki drekka viskí ofan í neitt annað og hafðu það í
miklu hófi, svo ég allaveganna lærði eitthvað um helgina hehe
Sumarið er komið eða ekki komið, leiðnda veður í alla staði, það
er vonandi að ég fái góðan tíma um næstu helgi en ég stefni á að
fara í frí með tengdafjölskyldunni á Höfn í Hornafirði og er viss
um að það verði mikil skemmtun. Spurning um að rífa settið með og
athuga hvort það sé ekki ennþá á sínum stað.
Annars spilaði ég sveitavöll rétt fyrir utan Flúðir á laugardag
og það er einhver almesta þrekraun sem ég hef lagt í. Völlurinn er
byggður yfir og meðfram og þvert yfir mestu fjallgarða Árnessýslu
og maður er á pústinu allan tímann, en virkilega gaman að kljást
við þetta, svo ekki sé meira sagt.
Annars þá er nóg um að vera og spurning hvort maður taki sér
ekki dágott frí á næstunni til að slappa örlítið af og koma sér í
formið fyrir haustið, er farinn að kitla í lappirnar við það að
komast aftur í boltann og hlaupa svolítið
»
25.06.2006 22:49:11 / omarh
Kominn í Kópavoginn aftur
Tók þátt í Arctic í vikunni og viti menn, gata ekkert og endaði
í ekki-verðlaunasæti, Úlli kallinn tók þetta með stæl en mótið var
spennandi og frábært í alla staði, seinni dagurinn eða nóttinn er
víst best að kalla þetta var alger shcnilld.
Við hjónakornin eyddum þessari viku íbústað í Vaðlaheiðinni með
ótrúlegt útsýni og bústaðurinn sem við fengum afnot af var einhver
sá alflottasti sem ég hef komið í.
Svo allt í allt var vikan góð, helginni lauk svo með heljarinnar
brúðkaupi sem ég entist ekki mikið í enda vakti ég til 7 og svo
flug til Aey kl. 12 brautskráningin og brúðkaup allt án frítíma svo
eiginlega var kallinn orðinn helvítið þreyttur.
Ég hjálpaði svo Gumma svila við pallagerðina í kvöld, og
engan venjulegan pall, held hann sé stærri í fermetrum en íbúðin
sjálf en það verður að segjast að þegar hann hefur lokið af
smíðinni þá mun íbúðin líta mun betur út.
Segi þetta annars gott í kvöld
Guten Nacht
»
15.06.2006 14:11:35 / omarh
Styttist í það að fara "heim", er heldur betur að komast í
gírinn að fara að kíkja á bestasta staðinn og slappa af. Það er
lítið skipulagt nema veislan á lau og ég lofa miklu stuði, og
aldrei að vita nema maður taki skál og haldi heljarinnar ræðu með
söng og gleði. Annars hlakkar mig mikið til að sjá
framkvæmdir og líta á völlinn. Með fiðringinn í puttunum og
dauðlangar að taka Arctic með trompi og eiginlega efast ekkert um
það 
Annars er HM í fullum gangi og ég er á því að Ítalía, Brasilía
og jafnvel spánn sem ég tel að verði spútnik, eigi mesta möguleika
á að sigra þetta. svo verður maður bara að sjá hvernig þetta fer
allt saman en án efa skemmtilegir leikir fram undan. Róbótinn
Crouch að fara að spila eftir smá stund og ég verð að segja að
bretarnir eru nú ekki með skemmtilegasta liðið líkt og þýskarar sem
eiginlega spila bara leiðinlegan fótbolta og vona ég að bæði þessi
lið falli úr leik sem fyrst.
hafði gríðargaman af Ghana-monnum sem sýndu brillíant takta en
töpuðu þessu á aumingjaskap, má búast við miklu frá þeim.
Allaveganna skemmtilegir á að horfa.
Ætla að segja þetta gott í bili, farið varlega á
þjóðhátíðardeginum!
ciao bella
»
06.06.2006 11:23:43 / omarh
Þá er loksins komið að því.
Ritgerðinni lokið og einkun komin, nú er ekkert sem stendur í
vegi fyrir brautskráningu og eftirsóttri BS gráðu í viðskiptafræði.
Nú fer í hönd sölustarf enda þarf nú að koma þessum fróðleik til
fjöldans 
Svo er það hin mikla barátta í pólitíkinni, Halldór hefur
ákveðið að hverfa a braut og fer þar mikil og merkileg persóna sem
hefur látið margt af sér leiða. Kvótakerfið einkavæðing og
virkjanir standa sjálfsagt upp úr á þessum 32. ára ferli í
stjórnmálum. Annars verður sjónarsviptir af jafn miklum góðmanni og
Halldór er, og all óvíst hvað tekur við í Framsóknarflokknum núna.
En ég ætla ekki að tíunda frekar um það
Hitt er annað mál að ég mun blása til stórveislu þann 17. júní
og það að sjálfsögðu á Akureyris, kominn tími á gott frí og ætla ég
og mín fína frú að taka góða viku í sælunni á Akureyri. Það verður
náttúrulega pottþétt 20 stig og sól allan tímann. "Bara mismikil 20
stig og sól"
Svo styttist í Arctic Open, er búinn að vera að slá örlítið og
mun smám saman auka æfingar og stefni á að toppa 22. og 23. það
verður ekki sæst á neitt annað en sigur allt annað er náttúrulega
bara meðalmennska og get ég engan veginn sætt mig við tap.
Annars spilaði ég Grafarholtið í gær og á einfaldan hátt er hægt
að segja að völlurinn sé skelfilegur, vonandi að tíðin verði góð
svo hann náist á strik fyrir vertíðarlok. Korpan kemur vel undan,
GKG er svona sæmilegt en ég hef ekki spilað aðra ennþá. Oddurinn
verður tekinn með trompi á fimmtudaginn.
Segjum þetta gott í bili
Ómar. BS.
»
Síður: 1 2 3
|
|